Orlofsíbúð til leigu á Akureyri

Til leigu 75 fm orlofsíbúð að Ránargötu 16 á Akureyri

 

 

Erum með notalega orlofsíbúð til leigu á góðum stað á Akureyri. Íbúðin getur rúmað 6 manns í gistingu. Hún er tveggja herbergja og skiptist í svefnherbergi með tvöföldu rúmi, stofu með þægilegum sófa þar sem tveir geta sofið og einnig fylgja dýnur fyrir tvo.  Í íbúðinni er fullbúið eldhús og baðherbergi með sturtu.  Íbúðinni fylgja sængur, koddar, viskustykki og hreinlætisvörur en nauðsynlegt er að hafa meðferðis sængurföt og handklæði. Íbúðin er einkar heimilisleg og skapar notalegt andrúmsloft fyrir gesti.

Reykingar og dýrhald er með öllu óheimil.

 

Íbúðin er að lágmarki leigð út í tvær nætur 20.000,- kr.  Aukanótt er á 10.000- kr. vikuleiga er kr. 52.500.

Bókun er ekki staðfest fyrr en greiðsla hefur borist og staðfesting sendist á netfangið sba@sba.is

 

webservices2
webservices1
9
8
7
6
5
4
3
2
10
1