Perlur norðursins
Akureyri - Mývatn - Krafla - Dettifoss - Ásbyrgi - Húsavík - Akureyri
Tímabil: 19/6 - 31/8 2010 (Fer eftir ástandi vega)
Brottför: Frá Umferðarmiðstöðinni Hafnarstræti 82 Akureyri kl. 08:15
Frá Akureyrarflugvelli kl. 08:05
Lengd: 10 klst.
Verð: 11.500 kr. Athugið að 10% afsláttur fæst ef bókað er á netinu.
Börn 4-11 ára: 50% afsláttur. Ókeypis fyrir börn undir 4 ára aldri.
Innifalið í ferð: Rútuferð og leiðsögn frá Akureyri til Mývatns.
Í þessari ferð gefst kostur á að heimsækja allar þekktustu náttúruperlur Norðurlands. Lagt er af stað frá Umferðarmiðstöðinni á Akureyri kl. 08:30. Fyrst er ekið norður Svalbarðsströnd, austan Eyjafjarðar og austur yfir Víkurskarð. Þaðan er komið niður í Fnjóskadal og ekið áfram austur í gegnum Ljósavatnsskarð. Fyrsta stopp í þessari ferð er við Goðafoss. Hann er ekki aðeins einn af okkar fallegustu fossum, heldur líka tengdur sögu Íslands í því mikilvæga máli, kristnitökunni. Frá Goðafossi er haldið sem leið liggur áfram austur yfir Fljótsheiði og um Reykjadal að Skútustöðum í Mývatnssveit. Þar eru afar reglulegir gervigígar sem vert er að veita athygli. Þaðan er haldið meðfram suðurströnd Mývatns að þorpinu í Reykjahlíð þar sem komið er um kl. 11:20. Skipt er um rútu og stigið upp í Kröflu - Dettifoss bílinn (leið nr. 661) sem leggur af stað frá Upplýsingamiðstöð ferðamanna kl.11:30. Fyrst er haldið austur yfir Námaskarð og upp að Kröflu, framhjá fyrstu alvöru gufuaflsvirkjun íslendinga,
Kröfluvirkjun, upp að sprengigígnum Víti. Myndun hans markaði upphaf Mývatnselda árið 1724. Við Víti er stoppað í nokkrar mínútur. Héðan er gott útsýni að Leirhnjúk og hraununum sem runnu í Kröflueldum 1975 til 1984. Frá Víti er haldið til baka niður á þjóðveg 1, ekið eftir honum austur á Mývatnsöræfi og beygt inn á Dettifossleiðina sem liggur vestan Jökulsár. Að Dettifossi, aflmesta fossi Evrópu, er komið um kl. 13:00 Klukkan 14:00 er skipt um bíl og haldið áfram (með leið nr. 641a) að Hljóðaklettum sem eru víðfrægir fyrir hið margbreytilega stuðla- og rósaberg sem einkennir þessar fornu gígarústir. Hér er stoppað í u.þ.b. hálftíma áður en haldið er niður í Ásbyrgi sem þjóðsagan segir að sé fótspor Sleipnis, hins áttfætta hests ássins Óðins. Óvíða á Norðurlandi er gróður meiri og fjölbreyttari en í Ásbyrgi. Úr Ásbyrgi er svo ekið fyrir Tjörnes til Húsavíkur og þaðan til Akureyrar þar sem ferðinni lýkur um kl. 18:10.
Athugið að leiðsögn er aðeins í fyrsta hluta þessarar ferðar, þ.e. Akureyri - Reykjahlíð við Mývatn.